Dagur 1..... Hólkur 1
Dagur 1 var sko í gær en þar sem hólkur 1 var í vænri sókn og góðu fóðri hjá ættingjum á Norður Jótlandi gafst því miður ekki tækifæri til að rissa niður smá annál, já svona rétt í tilefni dagsins. Þvílíkur snilldardagur, maður byrjaði bara á nettri heilaleikfimi í stærfræði og tók svo bara beina rás til Tværsted. Þetta var nátturlega bara snilld, þarna býr hann Raggi frændi minn og freyja hans, ásamt fullt af íslenskum hestum, ullarsvínum, hundi og köttum. Sveitasælan endaði svo í stórsteik (fékk mér enga sósu og skar alla fitu frá), var voða samviskusöm NEMA rauðvínið það var bara svo gott. En þegar bóndinn bauð upp á wisky og irish létt hnátan kyrrt liggja. Við leysin gistum svo í fersku sveitaloftinu með skoppandi mýs uppi á þakinu. Vöknuðum svo í morgunsárið þar sem morgunmatur beið okkar og svo var bara að vinda sér í smá göngu í nátturinni og á HESTBAK, þvílíka snilldin. Það eru nátturlega enn engin kíló farin, en þau fara vonandi að mjakast af. Leiðinlegt að vera svona mikill hólkur, fann það þegar að ég var að hossa mér upp á hestinn, greyið hann! Fórum svo líka í fitness í dag og erum búin að binda okkur í ár, já bóndinn ætlar sem sagt að bætast í hólkahópinn. Þangað til næst-yfir og út-hólkur 1

1 Comments:
Til lukku með þetta, hélt fyrst að ég væri kominn á heimasíðu Stefáns frá Útistöðum (ladda), Skkaut bara KKvikindið með Hólkknum:)))
Post a Comment
<< Home