Tuesday, January 09, 2007

Fyrstu dagarnir - hólkur 1

Jæja börnin góð, það er eflaust farið að hlakka í ykkur eftir fréttum frá hólkunum. Hólkur 1 er búin að ganga í gegnum mikla böl með þessu átaki, en böl þessi er kennd við sykur. Dísus kræst maður hvað ég fékk mikinn hausverk þegar að ég var ekki að fá neinn sykur fyrstu dagana, ég hélt bara að ég þyrfti að láta leggja mig inn á endanum. En nú er sykursjokkið farið og enginn sykur né gosdrykkir komið inn fyrir mínar varir tja síðan faktískt miðnikudaginn síðasta. Átakið gengur sem sagt alveg ótrúlega vel, er búin að borða mjög hollan mat og farin að hreyfa mig. Á svo tíma í fitness hjá svona þjálfara á fimmtudaginn til þess að setja upp æfingaprógram fyrir mig og mína keppi. Dagurinn í dag leggst líka bara vel í mig, en ég verð bara að taka þessu eins og alkarnir 1 dagur í einu. Byrjaði daginn á fersk pressuðum appelsínusafa og fékk mér svo einn banana í ábót(fyrir þá sem ekki vita er efni í banana sem að gerir mann glaðann), í hádigsmat fæ ég mér svo líklegast rúgbrauð og salat, á milli mála er svo snilld að nasla í gulrætur og seinni partinn kanski eitt hrökkbrauð(ef ég er svöng), í kvöldmatinn verða svo kjúklingafrikadellur a´la hólkur 1 með rauðkálssalati. Jæja nú er best að vinda sér í lærdóminn, yfir og út og hafið það gott öll sömul - hólkur 1

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

he he, var soldið að flýta mér að skrifa. Sorry villurnar vinir góðir!!

Kveðja Hólkur 1

1:27 AM  

Post a Comment

<< Home