Tuesday, May 01, 2007

holkur 1 er farinn a www.svanborg.blogspot.com

Monday, February 19, 2007

grenning takk...

Ég er feit, múhaaa. EN er annars bara búin að vera fersk, búin að fara í ræktina föstud,laugad, og sunnudag og fer sko aftur í dag. Ég og ræktin mín erum orðnir góðir vinir. 'I öllu vælinu síðast gleymdi ég nú samt alveg að segja ykkur að ég er búin að missa 4 kg. Nú er bara að halda áfram, sagði einmitt við hólk 2 að það yrði bara sellerí, salat, vatn og votki á boðstolnum þegar að hún kemur til mín í sveitina eftir bara 12 daga. Er bara jákvæð núna og horfi bjart fram á við og ætla bara að rúlla þessum aukakílóum langt út í sjó, hilsen hólkur 1

Thursday, February 15, 2007

Nýtt á nálinni frá hólk 1

Jæja spurning um að skrifa eitthvað, er nátturlega ekkert eins dugleg við að skrifa og ég ætlaði mér í byrjun, en svona er ég víst að eðlisfari. Er annars bara alltaf í skólanum, familíast og drattast í ræktina þegar tækifæri gefst. Fórum reyndar í sund í gær og ég synti ekki svo mikið sem 1 meter, en var líka í þetta skifti með góðann félagsskab og þá er nú skemmtilegra að slúðra en að brenna kalóríum. Brenna kalóríum my ass, þetta gengur aðeins of hægt fyrir mig, og ég sem þjáist af strax veikinni og það sérstaklega á þessu sviði. Ég er búin að vera frekar dugleg, passa mig að borða reglulega og hollann og fjölbreyttan mat og fæ mér svo smá nammi á föstudögum. Ætla ekki að reyna að ljúga öðru af ykkur. Svo hef ég líka alveg fengið mér eitthvað fljótlegt og það er það sem skemmir allt, ikke sant!! Ég er komin með kenningu, ég er eins og lítil börn, það þarf helst að segja mér allt. Þyrfti helst að vera með manneskju við hlið mér sem myndi alltaf gefa mér rétt að borða. Þess vegna þegar að ég hef verið í megrun og hefur gengið best hef ég fylgt einhverjum ákveðnum kúr, þú veist þá má ég ekki borða þetta og ekki þetta og á að borða svona mikið af þessu núna en ekki hinn daginn. Sem sagt stundarskrá yfir hvað ég á að borða. En ég samt ákvað síðast þegar að ég var á kúr á ég ætlaði ekki á svoleiðis aftur af því að þar átti ég að vigta matinn minn og ég nennti því ekki, svo fannst mér það bara vesen. Í staðinn fyrir að það stæði 3 gulrætur, 1 kjúklingabringa, hálf gúrka o.s.frv. , ég sver það, ég er bara looser á þessu sviði. 'UFF meðborgarar og aðrir landsmenn mér gengur eitthvað illa þessa dagana, vantar góð ráð og jákvæðan hug. Ég er hulinn í álögum hólks og langar ekki að hlaupa um á múslima strandfatnaði í sumar. Mig langar að minnsta kosti bara til að vera í hlýrabol án þess að bingovöðvarnir eru enn meðfram hliðunum þegar að ég held höndunum uppi, he he. Ég er annars búin að vera að gera smá rannsókn á megrunarkúrum, bara þar sem að maður breytir um mataræði og það er búið að koma ýmislegt í ljós sem fáfræðingurinn ég ekki vissi. (trúi ekki á pillukúra) Það sem að ég get lesið best út úr því sem stendur í svona læknaritum sem ég finn á dönsku hér á netinu, svo mæla þeir helst með atkins kúrnum fyrir hólka, til þess að fljótt minnka líkurnar á því að þeir drepist úr kransæðastíflu. Það sem vantar svo inn í þessar rannsóknir það er hvernig hólkunum gengur 1 ári eftir að þeir byrja á kúrnum. Í Englandi eins og er eru 1.2 milljón manna á atkins!! DJOK, Og þar í landi er sameiginleg evrópsk rannsókn í gangi um hvernig kúrinn fyrirbyggir blóðtappa, kransæðastíflu og hjartáfall hjá hólkunum. Ég hefði sko aldrei trúað þessu um atkins. Hólkur 2 missti líka á sínum tíma mjög mörg kíló á atkins. Í framhaldi af þessum áhugaverða lestri af atkins fór ég á heimasíðu bókasafnins og pantaði mér 2 bækur um kúrinn, Atkins for livet og Atkins kogebog og reyndar 1 enn, he he ég og megrun erum djók!!!!!! Díses verð að þjóta, var verið að hringja úr mig úr skóla hólkaprinsessunar og hún er víst orðin lasin, verðum í bandi

Saturday, February 03, 2007

OMG..

Var að koma heim úr ræktinni og það er ekki nóg með að mjónurnar séu stífmálaðar lafandi á stepptækinu, nei hemmi minn. Þá labbaði fyrrverandi kallsins líka svona fersk áðan og byrjaði bara að labba á brettinu við hliðiná mér, allt í góðu með það(er mikið fallegri, mjórri, skemmtilegri og aðlaðandi) nema gamli greyið vissi ekkert að henni og lítur svona við (þið vitið hann er alltaf að horfa á mig í ræktinni, finnst ég svo sexy!!) og fékk vægt sjokk, þarna var fyrrverandi hólkurinn að trimma við hliðiná nýja hólkinum og sú fyrrnefnda hefur víst aldrei sett legg inn í fitness center áður, djöfulsins húmor var að horfa á svipinn á honum, he he. Það er hvergi friður, ég sver það!! Er annars byrjuð í skólanum aftur og það er bara great er í 6 manna stelpugrúppu og núna er það bara Girlpower, lýst bara rosa vel á. Mataræðið gengur bara svona la la, æi en ég fell alltaf í eitthvað smá, hef ekkert verið að missa mig en fékk mér t.d 2 bjóra í gær, sem að hlunkast núna framan á mér.. Leiðinlegt fyrir mig. En þetta er ekkert annað en aumingjaskapur, sjálfsvorkun og sjálfshötun. Ekkert væl og ekkert bræl, engin uppskrift í dag þar sem að ég er boðin í afmæli/innflutningsfest hjá Nynne og ætlar hún meðal annars að bjóða upp á kjúklingabringur og kartöflur (hólkar eru alltaf búnir að kynna sér matseðilinn), yfir og út, hólkur 1

Wednesday, January 31, 2007

Er ekki dáin úr kransæðastíflu....

En næstum því ég sver það!! Maður hólkast um í fitness og það eru ekkert nema MJóNUR ÞAR, það á að banna svona, svo eru þær jafn brúnar og fucking kúkurinn minn, hvað er svona fólk að misskilja. Það hlakkar ábyggilega í ykkur öllum núna því þið haldið að ég sé abbó út í gellurnar sem eru með rexu og brúnku dauðans en nei, þá er hólkaspikið barasta smekklegra. M'UHA ég þyngjist bara í fitness, en "de kloge" segja að það sé normið, rosa gaman að fara í fitness og vera voða duglegur og bæta á sig, já mjög uppörvandi. Ræddi við hólkavin minn áðan og kom okkur saman um það að skrifa allt sem við étum hér inn og þá getið þið svona kommentað á það, sagt OJ OJ OJ OJ eða bara geðveikt, ætla að hólkast í sturtu, blæ blæ hólkur 1 (hólkavinur minn ætlar að koma í sókn til mín, þegar ákveðin kíló eru farin)

Monday, January 22, 2007

Så er det bare med at komme igang!

Las það í klósettbókinni minni "Meiri fánýtur fróðleikur" að, að lemja hausnum utan í vegg brennir 150 kaloríum á klukkutíma. Spurning hvort maður ætti að gera það að vana að taka einn tíma á dag. Sjá hvort árangurinn verði betri. Hmmm...sperning! Hólkur2

Wednesday, January 17, 2007

Bilting fyrir fitubollur!


Ef nýji lífstíllinn klikkar, þá er ég með VARAPLAN!

- Burkini, sundföt fyrir múslima - Þá verður sko aldeilis hægt að fara á ströndina í sumar maður - falin!