Thursday, February 15, 2007

Nýtt á nálinni frá hólk 1

Jæja spurning um að skrifa eitthvað, er nátturlega ekkert eins dugleg við að skrifa og ég ætlaði mér í byrjun, en svona er ég víst að eðlisfari. Er annars bara alltaf í skólanum, familíast og drattast í ræktina þegar tækifæri gefst. Fórum reyndar í sund í gær og ég synti ekki svo mikið sem 1 meter, en var líka í þetta skifti með góðann félagsskab og þá er nú skemmtilegra að slúðra en að brenna kalóríum. Brenna kalóríum my ass, þetta gengur aðeins of hægt fyrir mig, og ég sem þjáist af strax veikinni og það sérstaklega á þessu sviði. Ég er búin að vera frekar dugleg, passa mig að borða reglulega og hollann og fjölbreyttan mat og fæ mér svo smá nammi á föstudögum. Ætla ekki að reyna að ljúga öðru af ykkur. Svo hef ég líka alveg fengið mér eitthvað fljótlegt og það er það sem skemmir allt, ikke sant!! Ég er komin með kenningu, ég er eins og lítil börn, það þarf helst að segja mér allt. Þyrfti helst að vera með manneskju við hlið mér sem myndi alltaf gefa mér rétt að borða. Þess vegna þegar að ég hef verið í megrun og hefur gengið best hef ég fylgt einhverjum ákveðnum kúr, þú veist þá má ég ekki borða þetta og ekki þetta og á að borða svona mikið af þessu núna en ekki hinn daginn. Sem sagt stundarskrá yfir hvað ég á að borða. En ég samt ákvað síðast þegar að ég var á kúr á ég ætlaði ekki á svoleiðis aftur af því að þar átti ég að vigta matinn minn og ég nennti því ekki, svo fannst mér það bara vesen. Í staðinn fyrir að það stæði 3 gulrætur, 1 kjúklingabringa, hálf gúrka o.s.frv. , ég sver það, ég er bara looser á þessu sviði. 'UFF meðborgarar og aðrir landsmenn mér gengur eitthvað illa þessa dagana, vantar góð ráð og jákvæðan hug. Ég er hulinn í álögum hólks og langar ekki að hlaupa um á múslima strandfatnaði í sumar. Mig langar að minnsta kosti bara til að vera í hlýrabol án þess að bingovöðvarnir eru enn meðfram hliðunum þegar að ég held höndunum uppi, he he. Ég er annars búin að vera að gera smá rannsókn á megrunarkúrum, bara þar sem að maður breytir um mataræði og það er búið að koma ýmislegt í ljós sem fáfræðingurinn ég ekki vissi. (trúi ekki á pillukúra) Það sem að ég get lesið best út úr því sem stendur í svona læknaritum sem ég finn á dönsku hér á netinu, svo mæla þeir helst með atkins kúrnum fyrir hólka, til þess að fljótt minnka líkurnar á því að þeir drepist úr kransæðastíflu. Það sem vantar svo inn í þessar rannsóknir það er hvernig hólkunum gengur 1 ári eftir að þeir byrja á kúrnum. Í Englandi eins og er eru 1.2 milljón manna á atkins!! DJOK, Og þar í landi er sameiginleg evrópsk rannsókn í gangi um hvernig kúrinn fyrirbyggir blóðtappa, kransæðastíflu og hjartáfall hjá hólkunum. Ég hefði sko aldrei trúað þessu um atkins. Hólkur 2 missti líka á sínum tíma mjög mörg kíló á atkins. Í framhaldi af þessum áhugaverða lestri af atkins fór ég á heimasíðu bókasafnins og pantaði mér 2 bækur um kúrinn, Atkins for livet og Atkins kogebog og reyndar 1 enn, he he ég og megrun erum djók!!!!!! Díses verð að þjóta, var verið að hringja úr mig úr skóla hólkaprinsessunar og hún er víst orðin lasin, verðum í bandi

0 Comments:

Post a Comment

<< Home